Logo

Sérfræðingur í þróun á mæliaðferðum

Umsóknarfrestur 18.05.2025
Fullt starf

Coripharma óskar eftir öflugum og lausnamiðuðum sérfræðingi til starfa á þróunardeild mæliaðferða. Deildin er hluti af Þróunarsviði Coripharma og sér um að þróa og gilda mæliaðferðir fyrir bæði hráefni og framleiðsluvörur. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni á rannsóknarstofu þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, nákvæmni og skil á niðurstöðum innan tilgreindra tímalína. Við leitum að einstaklingi sem nýtur þess að vinna í samhentu teymi sérfræðinga og leggur sitt af mörkum til jákvæðrar og uppbyggilegrar starfsmenningar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þróun mæliaðferða og þátttaka í þróunarferli nýrra samheitalyfja
  • Gilding HPLC mæliaðferða fyrir hráefni og framleiðsluvörur
  • Útreikningar, frágangur rannsóknarniðurstaðna og skýrslugerð
  • Almenn rannsóknarstofustörf og þátttaka í umbótastarfi innan gæðakerfis og tækjamála

Menntunar- og hæfniskröfur

  • B.S.c í raunvísindum sem og M.S.c sem nýtist í starfi
  • Reynsla af HPLC mælingum er kostur
  • Reynsla af vinnu í GMP gæðakerfum er kostur
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og geta til að tileinka sér nákvæm, öguð og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð tölvukunnátta ásamt góðri kunnáttu í íslensku og ensku

Fríðindi

  • Mötuneyti

Coripharma er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki með um 220 starfsmenn sem byggir á traustum grunni lyfjaþróunar og framleiðslu á Íslandi. Félagið sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og útflutningi samheitalyfja ásamt því að sinna verktökuframleiðslu fyrir önnur lyfjafyrirtæki. Frá því að félagið hóf starfsemi árið 2018 hefur það hafið framleiðslu á 22 lyfjum og er með 21 ný lyf í þróun. Nánari upplýsingar um Coripharma má finna á www.coripharma.is Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd. Umsóknarfrestur er til og með 18. maí næstkomandi.